sksiglo.is | Almennt | 06.05.2010 | 06:30 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 710 |
Athugasemdir ()

Steingrímur og Auðunn Stefnissynir. Ljósmyndari; Leó R. Ólason
Leó var á ferðinni í Kópavogi á dögunum og átti leið fram hjá veitingastaðnum Catalinu og sá þá hvar bræðurnir Steingrímur og Auðunn Stefnissynir stóðu þar utan dyra og mældu út veggi og glugga.
Auðvitað varð að heilsa upp á þá og spyrja hvaða framkvæmdir væru í gangi. Auðunn sem er borinn og barnfæddur Siglfirðingur af Eyrargötunni, sagðist vera að setja forláta flísar utan á húsið, en stóri bróðir væri mest í handlangi og minni háttar viðvikum. Steingrímur sagði þetta ekki allskostar rétt því hann þyrfti að vera verkstjóri yfir litla bróður svo hann vissi hvað hann ætti að gera. Annars væri aðallega verið að punta staðinn fyrir Siglfirðingaballið sem halda ætti þann 15. maí í tengslum við fjölskyldudaginn og afmæli bæjarins.
Athugasemdir