Siglfirðingaballið á Catalinu

Siglfirðingaballið á Catalinu Laugardaginn 15. maí síðastliðinn var Siglfirðingaball á Catalinu í Kópavogi og hefur Siglo.is borist myndir af

Fréttir

Siglfirðingaballið á Catalinu

Ljósmyndari; Jón Magg
Ljósmyndari; Jón Magg

Laugardaginn 15. maí síðastliðinn var Siglfirðingaball á Catalinu í Kópavogi og hefur Siglo.is borist myndir af herlegheitunum en sérlegur ljósmyndari kvöldsins var Jón Magg.


Siglfirðingaballið á Catalinu var ágætlega sótt. Þar mátti sjá fjölda mjög þekktra sem og minna þekktra andlita. Athygli vakti að margir þeirra sem mættu á staðinn eru ekki fæddir nyrðra, heldur eiga ættir sínar að rekja í síldarbæinn. Algengt var að vísað væri til pabba og mömmu og jafnvel afa og ömmu ef spurt var hverra manna viðkomandi væri.

Óskírða bílskúrsbandið steig á pall þegar klukkan var farin að halla í eitt og lék í tæpann klukkutíma. Mátti þá heyra fjölmarga gamla kunningja svo sem Anna Lára, Bryndís, Bára, sönginn um rauðu sokka rabbarbarans, Eftir ballið, Ég sá hana fyrst, Gautasyrpu, Kveiktu ljós, nokkur Mannakorns og Bítlalög, en að endingu Sem lindin tær og þók þá salurinn undir svo um munaði. Baldi Júll fyrrum söngvari Gautanna steig einnig á pall og tók nokkra lauflétta og dansvæna slagara.

Sérlegur ljósmyndari kvöldsins var Jón Magg, en hann er fæddur árið 1955 og ólst upp á Aðalgötu 22 í húsi Rúdolfs Sæby. Hann flutti frá Siglufirði 1965 og er sonur Björns Grétars og Tótu (Oddnýjar og Jóns sem bjuggu á Hávegi 8).

Fleiri myndir má sjá hér


Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst