Siglfirðingar með hæsta tilboðið í Flókadalsá
Tilboð í efri hluta Flókadalsár í Fljótum voru opnuð á laugardaginn. SVAK var þar með lægsta tilboðið en
Stangveiðifélag Siglufjarðar með það hæsta.Siglfirðingar buðu 1.410 þ, næsthæstur var Þórarinn Halldórsson með 1.320 þ og þá Flúðir með 1.085.000, því næst 3 einstaklingar með 1.000 þ - 1.050 þ, SVAK rak svo lestina með 900 þ.
Gera má ráð fyrir að samið verði við Siglfirðinga.
Veitt er á 3 stangir í efri hluta Flókadalsár.
Veiðitölur í Flókadalsá og nokkrum öðrum ám - ATH hér um að ræða bæði svæðin í Flókadalsá en aðeins efra svæðið var boðið út að þessu sinni. Það mun þó vera aðalbleikjusvæðið
Af öðrum ám á norðanverðum Tröllaskaga er það að frétta að Orri Vigfússon hefur framlengt í Fljótaánni næstu 6 árin og skv. óstaðfestum fréttum verður framlengt við Bjarna leigutaka í Héðinsfirði.
Stangveiðifélag Akureyrar. http://svak.is
Athugasemdir