Siglfirski fjallahringurinn

Siglfirski fjallahringurinn Nýverið mátti lesa á heimasíðu ferðaklúbbsins 24x24 að sá hópur áætlaði að ganga allan Siglfirska fjallahringinn núna um

Fréttir

Siglfirski fjallahringurinn

Steingrímur Kristinsson
Steingrímur Kristinsson

Nýverið mátti lesa á heimasíðu ferðaklúbbsins 24x24 að sá hópur áætlaði að ganga allan Siglfirska fjallahringinn núna um Jónsmessuna. Hefja skyldi gönguna frá Strákum, halda suður fyrir fjörðinn, út austan megin og enda úti á Siglunesi og allt í einni lotu.

En það vita þeir sem eitthvað hafa gengið á fjöll að slíkt er ekkert áhlaupaverk fyrir venjulegt fólk í meðalformi. Þegar ég var staddur á Siglufirði fyrir fáeinum mánuðum, gerði ég mér ferð í síðdegiskaffi hjá mínum ágæta vini Steingrími Kristinssyni. Auk þess að ræða þetta hefðbundna, þ.e. daginn og veginn, veðrið og bæjarmálin, sagði hann mér nokkrar sögur frá unglingsárum sínum og þar á meðal frá fjallgöngu um þessar sömu slóðir. Ég fékk góðfúslegt leyfi hans til að taka spjallið upp og fer svolítið sýnishorn af því hér á eftir.


Þegar ég var unglingur vorum við Valbjörn Þorláksson miklir mátar og lékum okkur mikið saman á unglingsárunum. Á tímabili gekk mikið æði yfir þar sem flestir guttar á okkar aldri vopnuðust boga og gengu um vígreifir með hann ásamt örvamæli á bakinu. Við vildum auðvitað ekki vera eftirbátar annarra og gerðum því þær ráðstafanir sem við töldum að myndu duga okkur. Á þessum tíma ráku Sveinn og Gísli trésmiðaverkstæði að Túngötu 40a þar sem Fríða Björk Gylfadóttir er með vinnustofuna sína í dag, en þeir byggðu m.a. Sparisjóðinn verkamannbústaðina, bankann og fleiri hús hérna í bænum svo einhver verka þeirra séu nefnd. Við leituðum til Sveins Ásmundssonar sem var bæði mjög barngóður og bóngóðir maður, en hann valdi handa okkur gott efni úr eik í tvo boga. Mig minnar að þeir hafi verið u.þ.b. 1.20 á lengdina og svo sagaði hann niður kvistalausa furu í örvar sem við pússuðum síðan til. Við æfðum okkur stíft og náðum allt að 50 – 60 metra löngum skotum. Að vísu gekk okkur ekkert sérlega vel að hitta í mark af svo löngu færi en á 10 – 15 metrum vorum við nokkuð öruggir. Þetta hefur líklega verið árið 1948 þegar Hvalfjarðarsíldin veiddist hvað mest og best.

Þá um sumarið ákváðum við að fara í heilmikla fjallgöngu og auðvitað höfðum við bogana með ásamt öðrum nauðsynlegum útbúnaði með okkur. Valbjörn bjó þá í Óskarsbrakkanum sem stóð niðri á bakkanum hjá gamla íshúsinu sem Óskar Halldórsson rak á sínum tíma og ég bjó þar reyndar líka um tíma.
Áður en lengra er haldið langar mig til að gera svolitla grein fyrir Valbirni. Hann var sonur hjónanna Þorláks og Ástu sem bjuggu hérna á Siglufirði. Hann er margfaldur Íslandsmeistari í frjálsum íþróttum, varð síðar Evrópumeistari og meira að segja heimsmeistari í stangastökki í öldungaflokki. Hann flutti aðeins 15 ára gamall með foreldrum sínum til Keflavíkur og ég hef því miður heyrt allt of lítið af honum síðan.

Við fengum leyfi hjá foreldrum okkar til ferðarinnar, ráðgerðum að ganga allan fjallahringinn umhverfis Siglufjörð og byrjuðum yst að vestanverðu. Við vorum vel nestaðir, lögðum upp með mikið af smurðu brauði, mjólk, ávaxtasafa, með svefnpoka á bakinu og auðvitað bogana góðu. Við vorum því talsvert klyfjaðir, en áhuginn og eftirvæntingin gerði byrðarnar léttari. Það var lagt upp snemma dags og gengin gamalkunnug leið, þ.e. upp með Hvanneyraránni, upp í Hvanneyrarskál og upp á Strákatopp. Þaðan út á Skrámu og síðan aftur til baka, fyrir Skálina og suður eftir Hafnarfjallinu.

Megnið af deginum fór svo í að þræða ýmist fjallatoppa eða eggjar, eftir Hafnarfjallinu, fyrir Skarðdal, Hólsdal og niður í Hólsskarð. Þá var eitthvað farið að líða á kvöldið, en okkur fannst samt of snemmt að staldra þar við, svo við héldum áfram og gengum líka fyrir Skútudalinn. Þegar við vorum komnir bak við slakkann sem er á milli Hestskarðshnjúks og Staðarhólshjúks þar sem Hestfjallið tengist Siglfirsku fjöllunum austan fjarðar, fannst okkur tímabært að búa okkur náttstað.

Þegar við vorum að koma okkur þarna fyrir, heyrðum við í fugli rétt hjá okkur. Valbjörn grípur þá til bogans og skýtur hann á 10 – 15 metra færi. Hann hitti hann í hálsinn og fuglinn féll steindauður til jarðar með það sama. Mig minnir að þetta hafi verið veiðibjalla sem alla jafna telst ekki til algengra matfugla, en við vorum samt ákveðnir í að bráðin skyldi verða náttverðurinn okkar. Við fórum því næst að svipast um eftir einhverjum eldsmat og náðum að safna saman svolitlu af þurru lyngi og lággróðri sem brann ágætlega.

Eitt af því sem við höfðum meðferðis voru eldspýtur og við gátum því kveikt bál sem við settum fuglinn á með fiðri og öllu saman. Við héldum eldinum við í einn eða tvo tíma, en töldum þá að “steikin” hlyti að vera orðin fullelduð og settumst að snæðingi.

Hvort sem það var tilfinning veiðimannsins blandin sigurvímu yfir að hafa borið hærri hlut í baráttunni við bráðina, eða þessi fugl er einfaldlega vanmetinn sem matfugl, þá fannst okkur hann alla vega hinn ljúffengasti.

Við skriðum síðan mettir ofan í svefnpokana undir geislum miðnætursólarinnar, umluktir hinni yfirþyrmandi kyrrð að fjallabaki og steinsváfum þar til nýr dagur var risinn.

Við vorum svolítið stirðir eftir alla gönguna frá deginum áður, enda var hún meira en það sem gæti talist ríflegur dagskammtur. Þegar við vorum búnir að teygja okkur svolítið og lausir við morgunstirðleikann  og strengjatilfinninguna, röltum við áfram í rólegheitunum fyrir Kálfsdalinn og norður Reyðarárdalinn.

Hluti af búnaðinum var kaðalspotti sem við brugðum yfir klettanibbur og lásum okkur niður eftir honum ef við vorum ekki alveg vissir um hvað var fyrir neðan okkur, en mig minnir að hann hafi ekki verið mikið notaður. Við komum niður að Reyðará um hádegisbilið og sáum þar mann sem er eitthvað að bardúsa úti á túni. Það reyndist vera Einar Stefánsson bóndi og við gáfum okkur á tal við hann.

Hann spurði okkur auðvitað hvaða ferðalag væri á okkur og við sögðum honum upp og ofan af ævintýrinu. Hann spurði þá hvort við værum búnir að borða eitthvað í dag og við vorum reyndar ekki búnir að því. Okkur var þá boðið til bæjar og ég smakkaði í fyrsta skipti á ævinni heimagert skyr með óblönduðum rjóma beint úr skilvindunni og var hann nærri því eins þykkur og skyrið.

Við fengum svo eitthvað fleira góðmeti og það verður ekki annað sagt en að það hafi verið tekið virkilega vel á móti okkur. Einar kannaðist við mig því ég hafði komið áður út á Reyðará með pabba þegar hann fór þangað til að setja þar upp vindrafstöð. Líklega hef ég þá verið 10 ára gamall eða svo.

Við sáum fram á að nú lægi fyrir okkur að ganga aftur í bæinn um Nesskriður eða Reyðarárdal, en Einar sagði okkur þá að hinkra því hann ætti leið inn í bæ seinni partinn. Við fórum því sjóleiðina síðasta spölinn og lukum þannig hringferðinni.

Texti og mynd: Leó R. Ólafsson.

 




Athugasemdir

27.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst