Siglfirskur Íslandsmeistari í hnefaleikum
sksiglo.is | Almennt | 30.04.2010 | 14:45 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 348 | Athugasemdir ( )
Siglfirðingurinn Adam Freyr Daðason (HFH) (sonur Daða Hafþórs og Hönnu Maríu Bjarna) varð Íslandsmeistari í veltivigt unglinga eftir viðureign við Arnór Már Grímson (HAK) þann 21. apríl sl. Jafnframt var hann kosinn efnilegasti hnefaleikamaður mótsins.
Adam Freyr er á sautjánda ári og hefur stundað hnefaleika í á fjórða ár. Fyrir áhugasama verður sýnt frá Íslandsmeistaramótinu í ríkissjónvarpinu þann 01.05. nk. Kl. 18.10.
Við óskum honum innilega til hamingju með árangurinn.



Athugasemdir