Siglufjarðardeild RKI útskrifar nemendur af námskeiðinu Börn og umhverfi.

Siglufjarðardeild RKI útskrifar nemendur af námskeiðinu Börn og umhverfi. Á námskeiðinu er farið í ýmsa þætti er varða umgengni og framkomu við börn,

Fréttir

Siglufjarðardeild RKI útskrifar nemendur af námskeiðinu Börn og umhverfi.

Kátir krakkar á Rauðakrossnámskeiði. Ljósmyndari; Finnur Yngvi Kristinsson
Kátir krakkar á Rauðakrossnámskeiði. Ljósmyndari; Finnur Yngvi Kristinsson

Á námskeiðinu er farið í ýmsa þætti er varða umgengni og framkomu við börn, aga, umönnun og hollar lífsvenjur, leiki og leikföng. Einnig er lögð áhersla á slysavarnir og algengar slysahættur í umhverfinu.

 

Leiðbeinendur á námskeiðinu voru Elín Arnardóttir hjúkrunarfræðingur og Mundína Bjarnadóttir leik- og grunnskólakennari.
Námskeiðin eru 16 kennslustundir og í lokin fá þátttakendur litla skyndihjálpartösku að gjöf og viðurkenningarskjal til staðfestingar um þátttöku.


Til hamingju krakkar þið stóðuð ykkur vel, gangi ykkur vel.
Kveðja Mundý og Elín.


Athugasemdir

21.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst