Síldarævintýrið 2010 – Síldarútvegsnefnd
Fjórði fundur nefndarinnar um síldarævintýrið 2010 var seinnipart þriðjudags en nefndin hittist nú vikulega til að leggja drög að 20 ára afmæli síldarævintýrisins á Siglufirði.
Ljóst er að mikilla breytinga er að vænta frá Síldarævintýri síðustu ára enda orðin allmörg ár síðan skipulagning hennar hefur farið svo snemma og vel af stað. Stefnt er að því að horfa til baka og hefja hátíðnina aftur til fyrri hæða með aukinni þátttöku heimamanna og skemmtilegrar dagskrár sem höfðar til allra. Þá er stefnt að því að dagskrá hátíðarinnar teigi sig allt fram í helgina á undan og verði því heil vika af léttum og skemmtilegum uppákomum á 20 ára afmæli ævintýrisins.
Á síðasta fundi kom Úlfar Eysteins í heimsókn, uppfullur af hugmyndum sem koma til með að nýtast við áframhaldandi skipulagningu hátíðarinnar. Úlfar verður sérlegur ráðgjafi nefndarinnar og mun verða henni innan handar við skipulagningu ævintýrisins.
Til að undirstrika áhersluna á það að horfa til baka hefur nefndin tekið upp það nafn sem hún bara á fyrsta síldarævintýrinu árið 1991. Síldarútvegsnefnd.
Sigló.is mun fylgjast grannt með framgangi mála hjá nefndinni og efast ekki um að Síldarævintýrið 2010 muni verða sannkallað ævintýri.




Athugasemdir