Síldarball endurvakið fyrsta dag vetrar
Síldarböllin svokölluðu sem voru fyrir nokkrum árum fastur liður í starfsemi Siglfirðingafélagsins, hafa ekki verið á dagskrá um nokkurra ára skeið. Nú stendur hinsvegar til að endurreisa þau.
Þetta voru á sínum tíma hinar skemmtilegustu samkomur og óhætt að segja að veruleg eftirsjá sé af þeim. Nú, þegar stendur til að endurreisa þau, stefnir Siglfirðingafélagið í samvinnu við hljómsveitina Vana Menn á að halda Síldarball 2010 fyrsta dag vetrar, eða laugardaginn 23. okt.
Fyrsti vetrardagur var á árum áður mjög stór dagur á Siglufirði. Þá sameinuðust ýmsir hópar, félög og fyrirtæki um að halda upp á hann og gera þá gjarnan vel við sig í mat og drykk. Er það von aðstandenda að viðtökurnar verði það góðar að ástæða þyki til að taka upp þráðinn til lengri tíma.
Boðið verður upp á síldarrétti og glæsilegan matseðil. Ýmislegt verður til skemmtunar í Félagsheimilinu Seltjarnarnesi þetta kvöld þar sem Síldarballið verður haldið. Má þar nefna ljúfa dinnertónlist, Helga Björns sem komur við og syngur “Lindina” og fleiri lög, hina frábæru söngkonu Þuríði Sigurðardóttir sem mætir stundvíslega kl. 23.00 á svið, að ógleymdum dansflokk frá Heiðari Ástvals. Hljómsveitin Vanir Menn mun síðan endurvekja stemminguna frá bryggjuballinu fyrir framan Hannes Boy síðan í sumar.
Forsala aðgöngumiða fyrir matargesti er hjá Merkismönnum (Gunni Binnu) alla daga á opnunartíma og miðasala á dansleik við innganginn.
Verð í mat og dansleik aðeins kr. 6.500
Verð á dansleik kr. 2.000



Athugasemdir