Síldarkvöld Kiwanis
sksiglo.is | Almennt | 03.05.2009 | 18:41 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 598 | Athugasemdir ( )
Í gærkvöldi var árlegt síldarkvöld Kiwanisklúbbsins Skjaldar haldið í bátahúsinu hjá Örlygi.
Blaðamanni Sigló.is hlaust sá heiður að vera boðið til hófsins og nýtti hann tækifærið til að smella af nokkrum myndum af herlegheitunum en veislan var öll hin glæsilegasta. Nokkrir síldarréttir voru í boði og var hver öðrum betri svo ekki sé nefndur plokkfiskurinn. Eftir síldarveisluna var síðan skundað til Kiwanisheimilisins þar sem gamanið hélt áfram fram á rauða nótt.
Myndir HÉR
Athugasemdir