Síldin kemur og síldin fer

Síldin kemur og síldin fer Það var líf og fjör við Róaldsbrakka þegar síldarsöltunarfólk sýndi gamla takta og heillaði gesti og gangandi með sér á vit

Fréttir

Síldin kemur og síldin fer

Stund milli stríða
Stund milli stríða
Það var líf og fjör við Róaldsbrakka þegar síldarsöltunarfólk sýndi gamla takta og heillaði gesti og gangandi með sér á vit síldarinnar.

Siglfirðingar og norrænir gestir okkar fengu að upplifa alvöru síldarstemningu þegar vaskur hópur söltunarfólks rifjaði upp gömul handtök.

Það er einstök upplifun að fylgjast með og láta hrífa sig aftur til horfinna tíma, þar sem lífið var síld og fátt annað komst að.

Þeir sem saman voru komnir við Róaldsbrakka fengu um stutta stund að upplifa þessa stemningu en jafnskjótt og síldin birtist þá var hún horfin aftur.

Síldin lætur nú eingöngu sjá sig á þessum uppákomum sem Síldarminjasafnið stendur fyrir í samstarfi við leikara úr bænum. Síldin er farin í bili og lætur sennilega ekki sjá sig aftur fyrr en á næstu hátíð í bænum.







Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst