Skíðaminjadeild FÁUM sett á fót

Skíðaminjadeild FÁUM sett á fót Stofnuð hefur verið sérstök skíðaminjadeild innan FÁUM - félags áhugamanna um minjasafn. Í vetur varð Skíðafélagið 90

Fréttir

Skíðaminjadeild FÁUM sett á fót

Skíðaáhugamenn og stjórn FÁUM
Skíðaáhugamenn og stjórn FÁUM

Stofnuð hefur verið sérstök skíðaminjadeild innan FÁUM - félags áhugamanna um minjasafn. Í vetur varð Skíðafélagið 90 ára og má segja að það hafi verið kveikjan að því að nokkrir áhugamenn fóru að huga að söfnun skíðaminja.

Þeir Bjarni Þorgeirsson, Jón Andrjes Hinriksson, Benóný Sigurður Þorkelsson og Rögnvaldur Þórðarson leituðu til FÁUM – félags áhugamanna um minjasafn, um að stofnuð yrði skíðaminjadeild innan félagsins. Þessi umleitun þeirra var samþykkt á fundi FÁUM 20. febrúar með undirskrift formlegs samnings. Kapparnir vilja færa skíðasögu Siglufjarðar til vegs og virðingar og hafa þegar staðið fyrir lítilli sýningu í glugga KS skrifstofunnar eins og flestum bæjarbúum er kunnugt.  Markmið skíðaminjadeildar er að safna gripum, ljósmyndum og öðrum heimildum sem tengjast skíðaiðkun siglfirðinga á liðinni öld svo opna megi skíðaminjasafn eða standa fyrir sýningum á þessari merku sögu. Starfsmenn Síldarminjasafnsins taka þessu framtaki að sjálfsögðu fagnandi og verða innan handar með skráningu gripa, forvörslu og uppsetningu sýninga.

Athugasemdir

23.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst