Skoger.123.is
sksiglo.is | Almennt | 03.02.2014 | 12:30 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 501 | Athugasemdir ( )
Á síðunni skoger.123.is sem Guðmundur Gauti Sveinsson sér um er hægt að finna mikið skemmtilegu efni sem tengist sjónum, sjómönnum og höfninni.
Í færslu frá því í gær, þ.e.a.s. 02. febrúar er fjallað um myndir sem Sigurður Helgi Sigurðsson yfirhafnarvörður
tók árið 2002. En þann dag var vel hátt í sjó eins og segir á skoger.is og myndirnar frá Sigurði sýna.
Á myndunum má sjá Sigluvík SI,
Stálvík SI, líklegast Sunnu SI, gamla Sigurvin og nokkra smábáta í dokkinni.
www.skoger.123.is er hörkuskemmtileg síða sem
Guðmundur Gauti sér um af miklum áhuga. Guðmundur Gauti er sonur Sveins Björnssonar og Guðnýjar Guðmundsdóttur.
Hér er slóðin á www.skoger.123.is og
ég mæli sterklega með því að þið skoðið þessa síðu sem bæði hefur skemmtigildi og er fræðandi.
Hér fyrir neðan eru svo myndir sem ég
tók í gær 02. febrúar 2014, semsagt 12 árum seinna í Siglufjarðarhöfn.
Mynd sem birtist með frétt sendi Guðmundur Gauti mér. Ljósmyndari Sigurður Helgi Sigurðsson.
Og slóðin á skoger.123.is







Athugasemdir