Skólaslit Grunnskóla Fjallabyggðar

Skólaslit Grunnskóla Fjallabyggðar Skólaslit Grunnskóla Fjallabyggðar fóru fram í annað sinn í Siglufjarðarkirkju föstudaginn 1. júní kl. 17:00. Gaman var

Fréttir

Skólaslit Grunnskóla Fjallabyggðar

Útskriftanemendur
Útskriftanemendur
Skólaslit Grunnskóla Fjallabyggðar fóru fram í annað sinn í Siglufjarðarkirkju föstudaginn 1. júní kl. 17:00. Gaman var að sjá hversu fjölmennt var á kirkjubekkjunum og greinileg spenna var í loftinu, sérstaklega hjá 10. bekkingum sem voru að ljúka sinni skólagöngu.

Mikil fækkun verður í nemendahópnum við útskrift þessa fjölmennasta árgangs skólans, en 42 nemendur voru í 10. bekk í vetur.

Dagskrá var með hefðbundunum hætti; skólastjóri flutti ávarp sem og fulltrúar nemenda, nemendur í 8. og 9. bekk fengu sín einkunnaspjöld afhent út höndum umsjónarkennara, fulltrúar skólans og ýmissa félagasamtaka afhentu viðurkenningar fyrir góðan námsárangur og að lokum fengu 10. bekkingar vitnisburð sinn fyrir starfið í vetur.

Að lokinni athöfn buðu foreldrar nemenda í 10. bekk starfsfólki skólans og nemendum 10. bekkjar til kaffisamsætis í safnaðarheimilinu.



Jónína Magnúsdóttir skólastjóri



Guðrún Unnsteinsdóttir deildarstjóri stýrði athöfninni



Elsa Hrönn Auðunsdóttir flutti annál 10. bekkjar fyrir hönd Siglfirðinga



og Marinó Jóhann Sigursteinsson fyrir hönd Ólafsfirðinga



Nemendur Tónskóla Fjallabyggðar sungu við undirleik kennara sinna



Tónlistaratriði, Guito og Þorsteinn



Nemendur 8. bekkjar fá afhentar einkunir úr höndum umsjónarkennara



Nemendur 9. bekkjar taka við sínum einkunum



Ríkey Sigurbjörnsdóttir aðstoðarskólastjóri, að afhenda nemendum 9. bekkjar sín einkunaspjöld









Arnar Þór Sverrisson fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í náttúrufæði



Hulda Vilhjálmsdóttir og Rebekka Rut Ingvarsdóttir fengu viðurkenningar fyrir góðan árangur í stærðfræði



og einnig fyrir góðan námsárangur í dönsku



Guðrún Hulda Ólafsdóttir fékk viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í íslensku



Kristín Margrét Halldórsdóttir fékk viðurkenningu fyrir samfélagsgreinar



Anna Lára Ólafsdóttir fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í listgreinum



Erla Vilhjálmsdóttir og Guðrún Hulda Ólafsdóttir luku grunnskólagöngu á 9 árum og fengu sérstaka viðurkenningu fyrir það



Marinó Jóhann Sigursteinsson fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í ensku



Nemendaráð fékk blóm fyrir vel unnin störf í vetur



Útskriftarnemendur



Útskriftarnemendur



Full kirkja af gestum og nemendum



Texti: ÞH
Mynd af Arnari Þór Sverrissyni og Guðmundi tók Elín B. Jónsdóttir
Aðrar myndir: GJS






Athugasemdir

21.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst