Smart raðhús í smíðum á góðum stað á Siglufirði.
Um er að ræða þriggja íbúða raðhús með bílskúr. Húsið er timburhús á steyptri einangraðri gólfplötu. Hver íbuð er 104 fm og þar af er ca 25 fm bílskúr.
Að utan er húsið klætt með formáluðum sementstrefjaplötum í dröppuðum lit. Þak er klætt svörtu stáli. Þakpappinn er Isola D-glass. Gluggarnir eru frá Atlantic Windows; úr hvítu PVC efni, hafa staðist 1100 psc slagregnspróf hjá NMI. Útihurðir eru hvítar, stálklæddar frá sama fyrirtæki og hafa hlotið umsögn hjá NMI. Bílskúrshurð af Garaga gerð, 2,4m á hæð, 2,7 m á breidd, hvít, álklædd með glugga.
Hiti er í gólfum ásamt stýringum sem fylgja með í rofastæðum, handklæðaofnar eru í þvottahúsi og á baði, 60x80cm hvítir. Allar innréttingar koma frá TAK. Innihurðir eru eikarlitaðar. Innréttingarnar eru spónlagðar eikarinnréttingar. þvottahúsinnrétting er sprautulökkuð hvít (litur 502 Allar breytingar á innréttingarpakka sem fylgir húsinu gerir viðskiptavinur beint upp við Tak. Gólf, þ.e. votrými; anddyri, þvottahús og baðherbergi er flísalagt ljósum flísum 30*60cm (tectonic ljós grá). Bílskúrsgólf skilast lakkað. Inn í öllum svefnherbergjum 8 tenglar og í Hjónaherbergi eru 12 tenglar. Gert er ráð fyrir síma og sjónvarpstenglum í flestum rýmum hússins.
Nánar á holtfasteign.is
Athugasemdir