Snjódrekinn
sksiglo.is | Almennt | 15.06.2010 | 11:34 | Bergþór Morthens | Lestrar 615 | Athugasemdir ( )
Glæsileg skúta í Siglufjarðarhöfn.
Skútan Snow Dragon II hefur nú legið í nokkra daga í Siglufjarðarhöfn.
Áhöfnina skipa þær Frances Brann og Krystina Scheller frá Alaska.
Þær stöllur komu hingað til lands frá Noregi og eru þær sérlega ánægðar með móttökurnar hér á Siglufirði.
Þær segjast vera sérstaklega hrifnar af kaffimenningunni á Íslandi og standardinum á kaffihúsum Siglufjarðar öfugt við reynslu þeirra í Noregi.
Þær sögðust ekki vera komnar hingað til þess að taka þátt í Midnight Sunrace en næsti viðkomustaður þeirra eru vestfirðir og síðan er förinni heitið til Grænlands. Hægt er að fylgjast með för þeirra á bloggsíðu þeirra : http://www.snowdragon2.blogspot.com/

Athugasemdir