Snjórinn horfinn
sksiglo.is | Almennt | 24.01.2011 | 11:45 | Helga Sigurbjörnsdóttir | Lestrar 540 | Athugasemdir ( )
Snjórinn, sem kom í hretinu núna fyrir stuttu, hefur heldur betur horfið núna um helgina og er allt orðið autt aftur. Jólatréið á torginu var tekið niður núna í morgun og örugglega verða aðrar jólaskreytingar teknar niður fljótlega,
og má því búast við að myrkrið verði ansi svart.
Svartklætt fólk og sérstaklega börn, sem er gangndi í myrkrinu ætti að huga að því að vera með endurskinsmerki, því það sést mjög illa og er sú vísa aldrei of oft kveðin. En nú fer að koma að því að sólin láti sjá sig í firðinum fagra svo það fer að birta til hjá okkur og svei mér þá ef það kemur ekki smá vorhugur í fólk þegar veðrið er svona gott, þó svo að veturinn sé ekki nálægt því búinn.

Athugasemdir