Sólstöðuganga

Sólstöðuganga Það var stór og góður hópur sem var mættur á Torgið síðastliðið föstudagskvöld til þess að taka þátt í Sólstöðugöngu Ferðafélags

Fréttir

Sólstöðuganga

Ljósmyndir Ingibjörg Ásgeirsdóttir
Ljósmyndir Ingibjörg Ásgeirsdóttir
Það var stór og góður hópur sem var mættur á Torgið síðastliðið föstudagskvöld til þess að taka þátt í Sólstöðugöngu Ferðafélags Siglufjarðar. Gengin var leiðin  Mánárdalur – Hvanneyrarskál.

Lagt var af stað uppúr kl. 9 með rútum frá Torginu. keyrt var inn í Mánárdal og gengið var eftir hinni svokölluðu Dalaleið.

Göngufólk fékk frábært veður, logn, sólskin og aðstæður því eins og best verður á kosið til þess að fylgjast með einum lengsta degi ársins líða hjá. 

Þegar komið var upp úr Mánárdalnum var stefnan tekin á Hvanneyrarskálina og síðan haldið sem leið lá niður til Siglufjarðar.  

Ferðin endaði síðan á pallinum hjá fararstjóranum Gesti Hanssyni og Huldu þar sem göngufólki beið dýrindis kjötsúpa. 

Frábær ferð í alla staði og mikil ánægja allra sem tóku þátt.








Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst