Söng- og hæfileikakeppnin
Þann 31. janúar fer hin árlega Söng- og hæfileikakeppni Grunnskólans fram í Tjarnarborg. Þar munu fjölmargir
nemendur stíga á stokk og sýna hina ýmsu hæfileika sem þeir búa yfir. Líklegt er þó að söngurinn verði
fyrirferðamestur.
Undanfarin ár hefur verið húsfyllir í Tjarnarborg á þessum viðburði og gestir hafa skemmt sér sérlega vel.
Þessa dagana stendur yfir skráning í keppnina og eru þeir sem ætla að taka þátt beðnir um að skrá sig hjá umsjónarkennara
sínum fyrir miðvikudaginn 16. janúar. Ekki verður hægt að skrá sig eftir það.
Athugasemdir