SR-vélaverkstæði á Siglufirði: Héðinsfjarðargöngin stækkuðu markaðssvæðið

SR-vélaverkstæði á Siglufirði: Héðinsfjarðargöngin stækkuðu markaðssvæðið SR-vélaverkstæði á Siglufirði byggir á traustum grunni, fyrirtækið var stofnað

Fréttir

SR-vélaverkstæði á Siglufirði: Héðinsfjarðargöngin stækkuðu markaðssvæðið

Ryðfrítt stál er sérgrein SR-vélaverkstæðis á Siglufirði. Ljósmynd; KEP
Ryðfrítt stál er sérgrein SR-vélaverkstæðis á Siglufirði. Ljósmynd; KEP

SR-vélaverkstæði á Siglufirði byggir á traustum grunni, fyrirtækið var stofnað árið 1935 og var lengst af sjálfstæð rekstrareining innan Síldarverksmiðja ríkisins.....svona hefst viðtal við Ólaf Sigurðsson framkvæmdastjóra SR-vélaverkstæðis í afmælisblaði Félags Málmiðnaðarmanna á Akureyri.


SR-vélaverkstæði á Siglufirði byggir á traustum grunni, fyrirtækið var stofnað árið 1935 og var lengst af sjálfstæð rekstrareining innan Síldarverksmiðja ríkisins, síðar SR-mjöls, en er nú í eigu starfsmanna verkstæðisins og nokkurra annarra aðila.

Auk vélaverkstæðis rekur fyrirtækið byggingavöruverslun á Siglufirði. Ólafur Sigurðsson véltæknifræðingur er framkvæmdastjóri. Hann segir að starfsmenn séu um tuttugu, flestir iðnlærðir.

„Hér er löng hefð fyrir málmsmíði. Meðal verkefna má nefna uppbyggingu og viðhald í loðnuverksmiðjum, viðhald og nýsmíði í skipum og fiskvinnslum. Segja má að ryðfrítt stál sé okkar sérfag og við höfum smíðað hundruðir snigla, varmaskipta og aðra hluti sem eru úr ryðfríu stáli.“

Ólafur segir að tilkoma Héðinsfjarðarganga breyti miklu fyrir starfsemi fyrirtækisins.

„Þegar göngin voru tekin í notkun stækkaði markaðssvæði okkar verulega. Núna er í raun ekkert mál að sinna verkefnum í Eyjafirði, við höfum til dæmis unnið mikið fyrir Becromal í Krossanesi. Þegar göngin voru ekki til staðar þurftu starfsmenn okkar þar að aka nærri 200 kílómetra til að komast heim til sín, ef þeir voru að vinna á Akureyri. Í dag eru um 70 kílómetrar á milli staðanna. Á móti má segja að fyrirtæki á Eyjafjarðarsvæðinu geta með auðveldari hætti boðið í verk á Siglufirði og þá er bara að standa sig og bjóða gott verð og
þjónustu.“

Ólafur segir að verkefnastaðan sé þokkaleg og hann er vongóður um að hjól atvinnulífsins fari að snúast hraðar en undanfarin misseri.

„Iðnfyrirtækin hér í Fjallabyggð hafa þróað með sér margvíslega samvinnu, þannig að saman getum við boðið í alls konar verkefni. Hér er verkþekking á nokkuð háu stigi, þannig að ég leyfi mér að vera bjartsýnan á framtíðina.“

Héðinsfjarðargöngin voru tekin í notkun í haust. Ljósmynd; KEP



Athugasemdir

10.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst