Stofnun félags um Síldarævintýrið á Siglufirði
sksiglo.is | Almennt | 20.05.2010 | 12:00 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 447 | Athugasemdir ( )
Félagið Síldarævintýrið á Siglufirði hefur nú verið í býgerð í nokkurn tíma og stofnfundur verið haldinn þar sem fjöldi manna og fyrirtækja skráðu sig sem stofnfélaga. Þeir sem ekki komust á fundinn en hafa hug á að vera stofnfélagar geta haft samband við Gunnar Smára í síma 894 8421 fyrir helgi.
Skipulagning hátíðarinnar er nú komin vel á veg og stefnt er að því að fyrstu drög að dagskrá liggi fyrir á næstu vikum. Nefndin hefur starfað nú stafað í 14 vikur og nýir meðlimir bæst við og er Aníta Elefsen nýjasta viðbótin.




Athugasemdir