Stórsýning í Skagafirði
http://www.skagafjordur.is/ | Almennt | 25.04.2010 | 03:27 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 331 | Athugasemdir ( )
Atvinnu-, mannlífs- og menningasýningin „Skagafjörður 2010 - lífsins gæði og gleði“ stendur yfir í íþróttahúsinu á Sauðárkróki nú um helgina.
Stöðugur straumur gesta hefur verið í íþróttahúsið á Sauðárkróki frá því húsið opnaði kl. 10 enda er margt að sjá, heyra og smakka á þar sem 108 fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök eru samankomin að kynna vörur sínar og þjónustu. Áætlað er að um 1500 manns hafi lagt leið sína í íþróttahúsið á fyrri degi sýningarinnar.
Það var Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins sem setti sýninguna eftir stutt ávarp Snorra Styrkárssonar, formanns atvinnu- og ferðamálanefndar Skagafjarðar. Við setninguna söng stúlknakórinn Draumaraddir norðursins undir stjórn Alexöndru Chernyshovu nokkur lög.
Samhliða sýningunni fara fram málstofur í Árskóla en um eða yfir 35 erindi verða flutt á 9 málstofum um helgina. Fjalla þau um hin fjölbreytilegustu verkefni, allt frá skapandi greinum til þyngri iðnaðar auk fjölbreyttra erinda um margvíslega þjónustu, menntun, umhverfismál og rannsóknir.
Þá er ótalið að fjölmörg atriði hafa verið flutt á stóra sviðinu í íþróttahúsinu í dag. Tónlistarhátíðin Gæran sem haldin verður á Sauðárkróki síðar í sumar kynnti hátíðina með flutningi nokkurra laga, Leikfélag Sauðárkróks flutti brot úr söngleiknum Fólkið í blokkinni sem frumsýndur er á Sæluviku Skagfirðinga, úrslit í stærðfræðikeppni FNV voru kynnt, nemendur úr Tónlistarskóla Skagafjarðar fluttu nokkur lög og það gerði einnig hljómsveitin Poke. Þátturinn frá A til J á Rás 2 sendi beint út frá sýningunni í dag.
Sýningin stendur einnig yfir frá kl. 10-16 á morgun (sunnudag) en kl. 14 á sunnudeginum verður Sæluvika Skagfirðinga, sem er ein elsta menningarhátíð landsins, sett á stóra sviðinu í íþróttahúsinu. Saga Sæluviku Skagfirðinga nær allt aftur til ársins 1874 þegar svonefndar sýslunefndarvikur hófu göngu sína. Meðal viðburða sem fara fram í tengslum við Sæluviku um allan Skagafjörð vikuna 25. apríl til 2. maí eru leiksýningar, ljósmyndasýningar, dansleikir, kvikmyndahátíð, myndlistasýning, og listahátíð barnanna, svo fátt eitt sé nefnt og ljóst að allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi þessa miklu menningarviku. Brot úr þessum viðburðum og fleirum til viðbótar verða flutt á sviðinu á meðan á atvinnulífssýningunni stendur.
Nánari upplýsingar á www.skagafjordur.is.




Athugasemdir