Stúlkurnar í Rauða krossinum á Ólafsfirði
sksiglo.is | Almennt | 15.05.2014 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 509 | Athugasemdir ( )
Ég kíkkaði á stúlkurnar í Rauða krossinum á
Ólafsfirði í síðustu viku.
Það var engin lognmolla sem tók á móti mér þar. Fullt af
hressum stúlkum sem voru hver annarri skemmtilegri.
Þegar ég kom þarna voru þær að prjóna, hekla, sauma og allskonar
ljómandi fínt. Meðal annars eru þær að gera barnateppi úr Héðinsfjarðartreflinum góða.
Stúlkurnar spjölluðu um hreinlega allt á milli himins og jarðar og fyrir
blaðamann með athyglisbrezt er alls ekki auðvelt að ná öllu því sem 10 konur tala um og þá meina ég að þær töluðu
allar í einu. Sumar töluðu borðsenda á milli um eitthvað tiltekið málefni, ein skaut einhverju inn í samtalið sem var á hinum enda
borðsins en þær virtust allar ná því sem allar hinar voru að tala um jafnvel þó þær væru að tala um einhvern allt annan hlut
við einhverja aðra. Ég veit, þetta er flókið. En svona var þetta bara og á tímabili sat ég bara og hlustaði á þetta
ótrúlega samtal þeirra á milli. Þær komu inn og út úr samtölum bara hviss, bamm, búmm. Bara ekkert mál.
En allavega var gaman að sjá hvað þær voru að gera og virkilega hressandi
og skemmtilegt að hitta dömurnar.
En Rauða kross dömurnar taka á móti fatnaði auk þess sem þær
prjóna og sauma. Fata-söfnunar gámurinn stendur við Pálsbergsgötu 1, við hliðina á Kristbjörgu netagerð. Fyrir þá sem
þekkja ekki göturnar á Ólafsfiriði er þetta gatan sem er næst smábátahöfninni.
Frá áramótum eru stúlkurnar búnar að senda nálægt
því 500 pakka af fatnaði fyrir ungabörn og börn til 12 ára aldurs til Hvíta-Rússlands.
Mikið er endurnýtt en svo gera handavinnukonurnar í Rauða krossinum kraftaverk
með því að nýta Héðinsfjarðartrefilinn góða og prjóna vettlinga ,sokka og húfur eins og enginn sé morgundagurinn.
Einnig hafa stúlkurnar sent 6 eurobretti sem er 1x1x1 metrar, af pokum með fötum sem fara
í flokkun suður. Það stendur til að fá annan gám svo þeir verði 2 gámarnir. Kannski einn í hvorum bæjarhluta.
Stúlkurnar hittast 1 sinni í viku í 2 tíma í senn(á
fimmtudagsmorgnum). Þá er að sjálfsögðu drukkið kaffi og mikið spjallað eins og fyrr sagði. Stúlkurnar vilja taka það fram að
karlmenn eru alveg innilega velkomnir líka.
Glæsilegt og óeigingjarnt starf sem Rauði krossinn vinnur
Og að sjálfsögðu tók ég myndir af skvísunum.












Athugasemdir