Forsala á Styrktartónleikana

Forsala á Styrktartónleikana Forsala fer fram í Samkaup/úrval á Siglufirði miðvikudaginn 16:00-19:00 og fimmtudaginn 11:00-13:00. Miðaverð er

Fréttir

Forsala á Styrktartónleikana

Forsala fer fram í Samkaup/úrval á Siglufirði miðvikudaginn 16:00-19:00 og fimmtudaginn 11:00-13:00. Miðaverð er 2.000.- (1.000.- fyrir 12 ára og yngri sem verða að vera í fylgd með fullorðnum). Þeir sem búa utan Fjallabyggðar geta haft samband við Róbert 848-4011 eða roberth@ismennt.is og tekið frá miða.

Fimmtudaginn 29.desember, klukkan 20, verða haldnir tónleikar í Siglufjarðarkirkju til styrktar fjölskyldum Elvu Ýrar Óskarsdóttur og Sölku Heimisdóttur.  Elva Ýr lést eftir alvarlegt umferðarslys að kvöldi 16. nóvember og Salka liggur ennþá mikið slösuð á Fjórðungssjúkarahúsinu á Akureyri.

Tónlistarfólk gefur alla sína vinnu sem og aðrir sem að tónleikunum koma.

Matti í Pöpum - Eyþór Ingi - Rúnar EFF - Björn Valur - Lára Sóley og Hjalti –Danni Pétur - Gómar - Karlakór Siglufjarðar - Þórarinn Hannesson – Þorsteinn Freyr - Lísa Hauksdóttir –Lísa Gunnarsdóttir– Svava Jóns - Ólöf Kristín – Heimir Ingimars - Tónskóli Fjallabyggðar.

Þeir sem ekki komast á tónleikana, en vilja gjarnan leggja sitt að mörkum er bent á reikning viðburðarins.  1102-05-405070. Kennitala: 101276-3099. 

Fyrirtækjum / stofnunum og félagasamtökum er bent á styrktarreikninginn, hægt er að senda kveðjur sem lesnar verða upp á tónleikunum. Slíkar kveðjur skal senda á roberth@ismennt.is Veitingastaðurinn Allinn verður með heitt súkkulaði og vöfflur til sölu frá 17:00 fram að tónleikunum þann 29. Allur ágóði rennur óskiptur í styrktarsjóðinn. Starfsfólk Allans gefur vinnu sína og Allinn gefur hráefnið.

Texti: Aðsendur

Mynd: GJS



Athugasemdir

30.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst