Tilkynning frá Vegagerðinni vegna viðgerðar á Múlagöngum
sksiglo.is | Almennt | 23.09.2013 | 17:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 121 | Athugasemdir ( )
Innsent efni.
Múlagöng verða lokuð í þessari viku vegna vinnu verktaka í þrjár nætur þ.e.
aðfaranætur miðvikudags til föstudags., frá kl. 23.00 og
til kl. 06.30 .
Það skal tekið
fram að viðbragðsaðilar geta farið um göngin án tafa þó lokun standi yfir. Vegagerðin vonar að
vegfarendur taki þessu vel og sýni ýtrustu aðgát við akstur á meðan framkvæmdum stendur, fyrir og eftir lokanir.
Athugasemdir