Tónleikar - Kalli
"Kalli er enginn nýgræðingur í tónlist en hann gerði eina stóra plötu með sveitinni Útopíu og
aðra minni í kringum aldamótin síðustu og mætti ef til vill lýsa innihaldi þeirra sem sveimkenndu rokki eins og var í tísku um
þær mundir.
Ég ætla bara að segja það strax að þetta er frábær plata og kannski fyrst og fremst af því Kalli er að gera það sem hann
kann manna best en það er að búa til tónlist sem snertir við manni, og fær mann til að líða vel og öðlast trú á
mannkynið í sömu andránni. Hæfileikaríkur, hógvær og einlægur kemur hann til dyranna eins og hann er klæddur og honum er það
fjarri að þykjast vera eitthvað.
Lögin er flest ákaflega ljúf og notaleg en í þau er jafnframt spunninn þessi sári þráður sem gerir ljúfa tónlist þess
virði að á hana sé hlustað.
Einhver talaði um að það væri heilun að hlusta á þessa plötu og ég er ekki frá því. Sennilega væri nær að
læknar skrifuðu "resept" fyrir Last train home frekar en þessum helvítis pillum endalaust."
(Björn Jónsson. bubbinn.bloggar.is)
Athugasemdir