Tónleikar í Menningarhúsinu Hofi Akureyri
Mig langar til að setja hér upplýsingar um mjög merkilega tónleika í Hofi á Akureyri af því að ég tel að þarna sé tónlistarviðburður fyrir alla Norðlendinga sem eiga heimangengt.
Ég
leyfi mér að kynna hér og minna á að á laugardaginn, 3. desember, verða í Hofi
einhverjir merkustu tónleikar á Norðurlandi þetta árið. Kristin Sigmundsson
þarf ekki að kynna söngfólki, hann er einn besti - ef ekki besti -
bassasöngvari heims. Víking Heiðar Ólafsson þarf heldur ekki að kynna, þessi
bráðungi drengur hefur spilað sig svo dátt inn í tónlistarheiminn á undanförnum
misserum.
Vðfangsefnið er Vetrarferðin (Die Winterreise) lagaflokkur eftir Franz Schubert
við ljóð Wilhelms Müller. Vetrarferðin er í tveimur hlutum, með tólf kvæðum í
hvorum hluta og segir sögu af ungum manni, óendurgoldinni ást hans og ferðalagi
hans að vetri. Mörg af þessum sönglögum eru jafnvel orðin hluti af söngheimi
Íslendinga.
Kristinn Sigmundsson hefur sungið Vetrarferðina margoft og meðal annars gefið
hana út á plötu með Jónasi vini sínum Ingimundarsyni. Gagnrýnendur voru á því
máli þegar Kristinn og Víkingur stilltu saman strengi sína í vor í Hörpu að þar
hefði gerst eitthvert undur. Samvinna og samstilling þessa reynslobolta í söng
af öllu tagi og hins unga píanósnillings hefði verið með ólíkindum. Svo vel
tókst til, að minnsta kosti, að þeir félagar hafa verið hvattir til að
hljóðrita þessa útgáfu sína á Vetrarferð Schuberts. Og ég veit ekki betur en
það verði.
Kveðja
Sverrir Páll Erlendsson
Athugasemdir