Tónleikar Þórarins Hannessonar

Tónleikar Þórarins Hannessonar Það er alltaf nóg að gera hjá Þórarni Hannessyni tónlistarmanni og þúsundþjalasmiði. Tóti eins og hann er oftast kallaður

Fréttir

Tónleikar Þórarins Hannessonar

Tóti og félagar
Tóti og félagar
Það er alltaf nóg að gera hjá Þórarni Hannessyni tónlistarmanni og þúsundþjalasmiði. Tóti eins og hann er oftast kallaður hélt tónleika í Þjóðlagasetrinu þar sem hann flutti frumsamið efni ásamt góðum félögum.

Það er nóg að gera í tónlistinni hjá Tóta þessa daganna og stíf dagskrá framundan.

Tóti söng með með Ragga Bjarna og Þorgeiri Ástvalds ásamt sönghópnum Gómum á skemmtun í Allanum þann 23. julí og flutti svo eigið efni á tónleikum í Þjóðlagasetrinu mánudaginn 26. júlí.

30. og 31 júlí mun hann ásamt Daníel Pétri Daníelssyni troða upp með gítarinn á Rauðkutorgi og þann 31. júlí kemur hann fram með Gómunum á sviðinu viðTorgið.

Þórarinn tekur auk þess þát í tveimur sýningum af dagskránni Meira salt í Bátahúsinu þar sem Gómarnir syngja með Ómari Ragnarssyni og Bogomil Font.

Þórarinn stendur svo sannarlega í ströngu þessa dagana því hann er líka að sinna Ljóðasetrinu sem fyrirhugað er að opna næsta sumar, en það stendur til að mála húsið á næstu dögum.

Þórarinn hefur unnið mikið og gott starf í þágu menningarmála á Siglufirði og er hann ötull baráttumaður fyrir eflingu menningar í bæjarfélaginu og hann hrós skilið fyrir sitt framlag.


Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst