Tónlist fyrir alla og Jazz á Hannes Boy
Þeir Björn Thoroddssen, fremsti jazzgítaristi Íslendinga, og Gunnar Hrafnsson, einn færasti kontrabassleikari þjóðarinnar, eru meðlimir í Tónlist fyrir alla. Á sunnudag klukkan 21:00 jazza þeir á Hannes Boy ásamt söngkonunni Margot Kiis.
Tónlist fyrir alla er verkefni sem hefur verið í gangi frá árinu 1994 og eru um 600 tónleikar á ári haldnir í grunnskólum landsins til ad vekja áhuga ungmenna á listinni. Á mánudag verða tónleikar med Birni og Gunnari í Grunnskóla Fallabyggðar.
Björn og Gunnar hafa verið í fararbroddi í íslensku tónlistarlífi sídastliðinn aldarfjórðung.
Björn Thorodssen þekkja allir sem fremsta jazzgítarista Íslendinga. Hann hef unnið til fjölda verðlauna fyrir gítarleik sinn, meðal annars var hljómsveitin hans Guitar Islandico fyrsta jassbandið til að fá gullplötu fyrir söluháa plötu.
Gunnar Hrafnsson kontrabassaleikari og tónlistakennari við FÍH hefur verið meðlimur Stórsveitar Reykjavíkur frá árinu 1994 og er talinn einn af fremri kontrabassaleikurum landsins.
Margot Kiis söngkona úr Dalvíkurbyggð kennir djass-og dægurlagasöng í Tónlistaskólanum á Akureyri. Margot er glæsileg söngkona sem meðal annars hefur gefið út djassplötu með þekktum íslenskum djasshljóðfæraleikurum, þar með talið Gunnari Hrafnssyni.
Athugasemdir