Tónskóli Fjallabyggðar, í samstarfi við félagsmiðstöðina NEON.
sksiglo.is | Almennt | 07.05.2013 | 13:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 184 | Athugasemdir ( )
Innsend frétt.
„Tónskóli Fjallabyggðar, í samstarfi við félagsmiðstöðina NEON, verður með opið hús í Tónskóla Fjallabyggðar á Siglufirði miðvikudaginn 8. maí. Húsið verður opið frá kl. 15.00 til 17.00 og fram koma nemendur og kennarar Tónskóla Fjallabyggðar. Boðið verður upp á skemmtilega dagskrá, fjöldasöng og fjölbreytt tónlistaratriði.”
„Félagsmiðstöðin Neon ætlar að bjóða bæjarbúum upp á vöfflur, kaffi og kakó sem þakklætisvott fyrir frábæran stuðning við áheitamaraþon Neons sem var í vetur.
Athugasemdir