Umferðartafir við strákagöng
sksiglo.is | Almennt | 05.07.2010 | 07:00 | Bergþór Morthens | Lestrar 638 | Athugasemdir ( )
Nokkrar tafir urðu á umferð við Strákagöng um kvöldmatarleytið í gær og mynduðust bílaraðir beggja vegna ganganna.
Þannig atvikaðist að tveir vöruflutningabílar mættust í göngunum og áttu í vandræðum með að athafna sig í göngunum. Lögregla mætti á svæðið og tók að sér umferðarstjórnun og greiddi þar með úr flækjunni.
Strákagöng eru barn síns tíma og þetta verður sennilega algengari sjón með aukinni umferð sem fylgir opnun Héðinsfjarðarganga, jafnt hér í Strákagöngum og í Múlagöngum.

Athugasemdir