Umferðin fyrir norðan minni
Umferðin síðastliðinn hálfan mánuð í kringum Dalvík og um
Héðinsfjarðargöng var nokkuð minni í ár en í fyrra. Umferðin er þetta 5 -
12 prósentum minni.
Þetta gæti bent til þess að vegfarendur hafi farið fyrr af stað fyrir þessar helgar í fyrra til að skoða hin nýju Héðinsfjarðargöng. En ekki hafi verið jafn mikill áhugi á því núna í ár að renna í gegnum göngin.
Héðinsfjarðargöng
Heldur meiri samdráttur varð um Héðinsfjarðargöng fyrir sama tímabil eða um 9,5%. Þar sem verslunarmannahelgin og helgin á eftir eru stórar á Siglufirði var ákveðið að skoða lengra tímabil eða tvær vikur. Sé það allt tekið þá varð um 12,1% samdráttur um Héðinsfjarðargöng, sjá meðfylgjandi línurit.
Hámundastaðaháls - sunnan Dalvíkur
Minni umferð var um Hámundastaðaháls, austan Dalvíkur, í kringum Fiskidaginn mikla þetta árið en varð á sama tímabili árið 2011. Vikuna í kringum Fiskidaginn mældist 5,7% minni umferð.
Mestu munar að mun minni umferð varð fyrr í vikunni þ.e.a.s. frá þriðjudegi - fimmtudags en á síðasta ári, sjá meðfýlgjandi línurit.
Í heild fóru um 1380 bílum færra sem áætla má að hafi verið um 3.600 manns færra, í báðar áttir, nú í ár miðað við síðasta ár.
Múlagöng
Þróun umferðar um Múlagöng, milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar, á þessu hálfsmánaðartímabili þ.e.a.s. mánudegi fyrir verslunarmannahelgina til sunnudags eftir Fiskidaginn mikla.
Á þessu tímabili mælist um 7,3% samdráttur frá árinu 2011.
Það er mun minni umferð norðan við Dalvík en sunnan við. Meðalumferðin á þessu 14 daga tímabili í Múlanum var 1237 bílar á sólarhring en sunnan við var 2508 bílar á sólarhring árið 2012. Eða rúmlega tvöfalt meiri umferð sunnan við en norðan.

Heimasíða: Vegagerðar
Athugasemdir