Fjallabyggð til fyrirmyndar 2012
Bæjarstjórn Fjallabyggðar skorar á alla íbúa sveitafélagsins að taka höndum saman og hirða upp drasl og rusl sem er að finna í næsta nágrenni við heimili og fyrirtæki.
Svartir ruslapokar verða afhentir á bæjarskrifstofunum til þeirra sem þurfa. Einnig er lögð áhersla á að fyrirtæki og ekki síður stofnanir bæjarfélagsins taki þátt í átakinu og haldi hreinu í kringum sig. Við þurfum að taka til í okkar umhverfi og með því að leggjast öll á eitt, getum við gjörbreytt ásýnd Fjallabyggðar.Láttum boðin ganga áfram. Saman getum við!
Það á að vera markmið bæjarbúa að Fjallabyggð verði til fyrirmyndar.
Tiltektin fer fram frá og með miðvikudeginum 25. apríl til og með laugadagsins 27. apríl.
Grunnskólanemendur taka til í miðbæ og á jaðarsvæðum miðvikudaginn 25. apríl og þann dag munu starfsmenn stofnana bæjarfélagsins taka til í sínu umhverfi.
Hér koma myndir frá Siglufirði sem tala sýnu máli. En hreisunarátakið nær yfir báða bæjarkjarnana.
Svo eru það snjóhaugarnir í miðbænum sem mætti moka burt.
Komum svo – látum verkin tala!Umhverfisfulltrúi Fjallabyggðar
Bæjarstjóri Fjallabyggðar
Texti: Aðsendur
Myndir: GJS
Athugasemdir