Unnið við sparisjóðinn

Unnið við sparisjóðinn Málararnir Doddi, Mark, og Stebbi vinna nú á fullu að því að undirbúa málun á húsnæði Sparisjóðs Siglufjarðar og apóteksins. Í

Fréttir

Unnið við sparisjóðinn

Stebbi einbeittur. Ljósmyndari; Finnur Yngvi Kristinsson
Stebbi einbeittur. Ljósmyndari; Finnur Yngvi Kristinsson

Málararnir Doddi, Mark, og Stebbi vinna nú á fullu að því að undirbúa málun á húsnæði Sparisjóðs Siglufjarðar og apóteksins. Í dag var unnið að viðgerðum á minniháttar múrskemmdum á húsinu.

 

Það hefur verið í nógu að snúast hjá málarameisturunum á síðustu viku en þeir hafa nýlega lokið við að mála Ráðhús Siglufjarðar sem tókst með eindæmum vel. Sparisjóðurinn er því annað húsið sem þeir taka að sér að mála í miðbæ Siglufjarðar í sumar og verður gaman að sjá hvernig um verður að litast í bænum þegar sumarið er liðið.
Sigló.is mun fylgjast með framkvæmdinni á næstu dögum og öðrum verkum sem bæjarbúar eru að vinna að þessa dagana.

Athugasemdir

21.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst