Unnið við spennistöð SR
sksiglo.is | Almennt | 05.06.2009 | 11:30 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 396 | Athugasemdir ( )
Það er ekki á hverjum degi sem rafvirkjar þurfa að grípa til pollagallans en Alli var gripinn glóðvolgur við þann gjörning í gær.
Það er þó ekki rétt að segja að hann hafi verið glóðvolgur þar sem glóðin í spennistöð SR höfðu verið slökkt fyrir þó nokkru síðan, en eins og menn muna þá var rafmagnsleysi á Siglufirði rekið til spennistöðvarinnar sem hafði þá orðið fyrir miklu tjóni.
Alli vinnur nú hörðum höndum af því að þrífa stöðina sem varð svört af sóti við brunann. Á sama tíma vinnur RARIK að því að moka frá og gera við stofnkapla að stöðinni.
Athugasemdir