Áhugamálið hans Óla Gunnars

Áhugamálið hans Óla Gunnars Fyrir um 13 árum síðan þurfti Ólafur Gunnarsson sjómaður að taka sér frí frá sjómennsku vegna veikinda.Óli var nú fremur

Fréttir

Áhugamálið hans Óla Gunnars

Uppstoppuð Kría og Glókollur
Uppstoppuð Kría og Glókollur
Fyrir um 13 árum síðan þurfti Ólafur Gunnarsson sjómaður að taka sér frí frá sjómennsku vegna veikinda.

Óli var nú fremur óvanur að hafa ekki eitthvað fyrir stafni svo honum datt í hug að læra að stoppa upp dýr, sem hann gerir ennþá í frístundum.

Það kom honum verulega á óvart hvað mikið er um það að fólk láti stoppa upp dýr og þá eru það helst fuglar sem verða fyrir valinu og segist Óli vera um tvo daga að vinna verkið.

Stærsta dýrið sem hann hefur stoppað upp er refur, en það minnst er Glókollur sem er minnsti  fugl á Íslandi og hefur tekið sér bólfestu í Skorradal.

Honum er fleira til lista lagt því hann hefur einnig fengist við að mála og sker út í tré. Það má því með sanni segja að Óli sitji aldrei auðum höndum.


Athugasemdir

16.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst