Upptökur á Siglufirði

Upptökur á Siglufirði Eiríksína Kr. Ásgrímsdóttir vinnur nú að gerð myndbands sem á að sýna í tilefni opnunar Héðinsfjarðarganga. Með henni í för er

Fréttir

Upptökur á Siglufirði

Upptökur í fiskbúðinni
Upptökur í fiskbúðinni
Eiríksína Kr. Ásgrímsdóttir vinnur nú að gerð myndbands sem á að sýna í tilefni opnunar Héðinsfjarðarganga. Með henni í för er Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikkona og eru þær stöllur búnar að vera að taka upp á Siglufirði.


Myndbandið gengur út á það að fá þrjá ættliði Siglfirðinga og Ólafsfirðinga að sýna eitthvað sem þeim finnst spennandi og áhugavert við bæinn sinn.

Þegar fréttamaður rakst á Eiríksínu var hún í Fiskbúðinni að taka upp. Meiningin er svo að sýna myndbandið á hvorum stað fyrir sig þegar göngin opna.

Flott hugmynd og verður spennandi að sjá hvernig myndböndin koma út.



Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst