Úrslitaleikur hjá 4. flokki kvenna
sksiglo.is | Almennt | 26.08.2010 | 09:30 | Bergþór Morthens | Lestrar 189 | Athugasemdir ( )
Fimmtudaginn 26. ágúst klukkan 17:00 fer fram úrslitaleikur um það
hvort að 4. flokkur kvenna kemst í úrslit á Íslandsmótinu.
Leikurinn fer
fram á Hóli og mótherjarnir eru Völsungur. Lið Völsungs er þegar búið að
tryggja sig í úrslit en ekkert annað en sigur dugir KS/Leiftri ef þær
ætla sér að taka þátt í úrslitakeppninni.
Nú er um að gera að mæta á völlinn og hvetja stúlkurnar til sigurs.
Áfram KS/Leiftur




Athugasemdir