Útsendarar Raffó á einhverjum bikarleik í útlöndum.

Útsendarar Raffó á einhverjum bikarleik í útlöndum. Ég var vinsamlegast beðin um að koma því á framfæri ásamt nokkrum myndum, að Raffó hafi verið með

Fréttir

Útsendarar Raffó á einhverjum bikarleik í útlöndum.

Ég var vinsamlegast beðin um að koma því á framfæri ásamt nokkrum myndum, að Raffó hafi verið með útsendara á einhverjum bikarleik í útlenska fótboltanum um daginn.


Sibbi og synir(Jóhann og Jón Heimir) smelltu sér á þennan fótboltaleik og tóku við einhverjum bikar fyrir hönd Raffó manna. 
Það lagðist víst einstaklega vel í Alla, Agga og Martein að senda þá út.

Ég vil einnig taka það fram að það er ekkert vandamál að birta líka myndir af Agga og Alla þegar þeirra lið vinna svona verðlaunabikar.(Ég held að Marteinn haldi með þessu liði sem vann þennan bikar).


Hérna koma nokkrar myndir. 

manju

Hérna er verið að heiðra einhvern fótboltamann með styttu.

manju

Hérna eru fullt af fóboltamönnum.

manju

Sibbi, Jón Heimir og Jóhann Már að halda á einhverjum verðlaunagrip.

manju

Fullt af fóboltamönnum að leika sér.

manju

Þetta er víst einhver annar leikur. Veit ekkert hvaða, örugglega bláir á móti rauðum.

manju

Chevrolet. Mig hefur alltaf langað í 1946 model af Chevrolet Pick-Up. Já og svo eru þeir

þarna í Chevrolet sætunum Jóhann Már, Sibbi og Jón Heimir.

manju

Þessir halda allir með Chevrolet.

manju

Hérna heilsast þeir allir. Það er víst svaka sport, að heilsast fyrir leik.

manju

Mynd af marki.(Held ég, veit ekki alveg af hverju þessi mynd er þarna en læt hana fara).

manju

Dómari og línuvörður eru í svörtu. 

manju

Ég veit ekki hvort þeir skipta um búninga í hálf-leik eða hvort þetta eru einhverji aðrir.


Athugasemdir

31.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst