Útsvar annað kvöld
sksiglo.is | Almennt | 14.10.2010 | 15:31 | Bergþór Morthens | Lestrar 431 | Athugasemdir ( )
Annað kvöld mun lið Fjallabyggðar keppa í Útsvari við lið Árborgar.
Útsvar er spurningakeppni sveitarfélaganna sem haldin er í beinni útsendingu í Sjónvarpinu á föstudagskvöldum. 24 sveitarfélög taka þátt að þessu sinni. Í liði Fjallabyggðar þetta árið eru nýliðarnir María Leifsdóttir, Halldór Þormar Halldórsson og Ámundi Gunnarsson.
Áhugasamir geta mætt í sjónvarpssal til að fylgjast með útsendingu og hvetja sitt lið. Áhorfendur þurfa að vera mættir í Útvarpshúsið, Efstaleiti 1, kl. 19.45. Útsending hefst strax eftir Kastljós.
Áfram Fjallabyggð.

Athugasemdir