Vanir Menn og Þuríður Sigurðardóttir með tónleika á Græna hattinum Akureyri.

Vanir Menn og Þuríður Sigurðardóttir með tónleika á Græna hattinum Akureyri. Við vorum beðin um að halda tónleika á Græna hattinum í svipuðum dúr  og

Fréttir

Vanir Menn og Þuríður Sigurðardóttir með tónleika á Græna hattinum Akureyri.

Hljómsveitin
Hljómsveitin
Við vorum beðin um að halda tónleika á Græna hattinum í svipuðum dúr  
og við vorum með í Bátahúsinu á Siglufirði um Páskana, þ.e. tónleika í  
tali og tónum og ætlum við að kýla á það að sögn Birgis Ingimarssonar  
trommuleikara Vana Manna. 

Dagskráin verður í svipuðum dúr nema að gestaspilari með okkur á Akureyri verður Grímur Sigurðsson, en hann  lék með Hljómsveit Ingimars Eydals um árabil og einnig með Hljómsveit  
Ragnars Bjarnasonar, dagskráin verður með svipuðu sniði en búið er að  
bæta nokkrum lögum við tengdum Akureyri sagði Birgir.

Við ætlum að vona að þeir gestir sem ekki komust á tónleikana í  
Bátahúsinu um Páskana renni á Akureyri laugardaginn 28. og kíki á  
Græna hattinn, en forsala er í Eymundsson Akureyri sími: 540 2180


Athugasemdir

08.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst