Veggjald í Hvalfjarðargöngum hækkar 1. febrúar
Veggjald í Hvalfjarðargöngum hækkar um tæplega 13% að jafnaði frá og með 1. febrúar 2010.
Fréttatilkynning frá Speli.
Gjald fyrir staka ferð í I. gjaldflokki fer úr 800 í 900 krónur.
Hver ferð áskrifanda að 100 ferðum í I. flokki fer úr 230 í 259 krónur.
Inneign áskrifenda minnkar sjálfkrafa við gjaldskrárbreytinguna, þ.e. ónotuðum ferðum fækkar sem svarar til hækkunar veggjaldsins.
Er þetta í annað skipti frá árinu 1998 sem spölur hækkar veggjaldið í Hvalfjarðargöng en gjöldin hafa hinsvegar alls lækkað fimm sinnum frá þeim tíma.




Athugasemdir