Veiðiskóli SVAK

Veiðiskóli SVAK Veiðiskóli SVAK hefst nú um helgina. Þetta er 4. árið sem hann er starfræktur og fer umfangið vaxandi. Í fyrra var alger metþátttaka

Fréttir

Veiðiskóli SVAK

Veiðiskóli SVAK hefst nú um helgina. Þetta er 4. árið sem hann er starfræktur og fer umfangið vaxandi. Í fyrra var alger metþátttaka og komu á annað hundrað manns á námskeið á vegum skólans. 

Í sumar verða 5 námskeið í boði, sem verða endurtekin nokkrum sinnum eftir þörfum og er þegar búið að teikna upp 25 skipti.
  

7 kennarar verða við skólann í sumar, allt þrautreyndir veiðimenn. Nú þegar er búið að skipuleggja: -Unglinganámskeið -Veiðinámskeið fyrir byrjendu -Flugukast fyrir byrjendur einhenda -Tvíhendunámskeið -Lærðu á ánna - boðið uppá veiði í ánum í firðinum með vönum veiðimönnum.

Skráning er á elli(a)svak.is (nafn og símanúmer - staðfesting verður send) Á hverju veiðinámskeiði er aðeins pláss fyrir 4 Fjöldi á  kastnámskeiðin er  ekki takmarkaður. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 696-5464. Námskeið eru haldin með með fyrirvara um næga þátttöku og skaplegt veður.

Sjá nánar hér

 


Athugasemdir

19.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst