Veraldavinir á Siglufirði
sksiglo.is | Almennt | 27.04.2009 | 11:40 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 451 | Athugasemdir ( )
Það hafa margir velt fyrir sér hvaða fólk hafi undanfarið unnið við Guðrúnu gömlu Jónsdóttur í smábátahöfninni, en í hóp Rauðku hafa bæst 6 vaskir Veraldavinir sem þar munu starfa í alls þrjár vikur.
Trébátinn Guðrúnu Jónsdóttur, sem í dag hefur verið nefndur Steini Vigg, er verið að gera upp en hann á að taka í geng og nýta undir sjóstöng í sumar. Að sjálfsögðu leiðir Haukur sjálfur þann hóp sem vinnur að bátnum enda þaulkunnur Guðrúnu Jónsdóttur.
Það er þó á enn fleiru að taka hjá Rauðku og er hluti hópsins frá Veraldavinum að vinna að niðurrifum á skúr þeim er stendur við suðurenda Ísafoldar og fer Grétar Guðfinnsson fyrir þeim hóp. Þar verður síðan lagður vegur inná fyrirhugað húsbílastæði við höfnina.
Athugasemdir