Viðburða- og menningardagskrá Fjallabyggðar
Innsent efni.
Í vinnslu er að taka saman í eitt skjal yfirlit yfir alla viðburði í Fjallabyggð á árinu 2014 með yfirskriftinni "Viðburða- og menningardagskrá Fjallabyggðar".
Markaðs- og menningarfulltrúi heldur utan um þessa vinnu og óskar eftir því að fá sendar upplýsingar frá stofnunum, félagasamtökum, verslunar- og þjónustufyrirtækjum og einstaklingum um alla áhugaverða viðburði sem verða í Fjallabyggð á árinu.
Fyrirhuguð útgáfa á dagskránni verður um mánaðarmótin janúar/febrúar.
Markmiðið er að vekja athygli á því mikla og fjölbreytta menningarlífi sem er í sveitarfélaginu.
Óskað er eftir því að upplýsingar verði sendar á netfangið kristinn@fjallabyggd.is og í síðasta lagi sunnudaginn 19. janúar n.k.
Athugasemdir