Vígsla Héðinsfjarðarganga
sksiglo.is | Almennt | 25.08.2010 | 10:30 | Bergþór Morthens | Lestrar 533 | Athugasemdir ( )
Í tilkynningu á heimasíðu Fjallabyggðar kemur fram að Fjallabyggð óskar eftir samstarfi við þá sem ætla að vera með
listviðburð, veita þjónustu eða annað skemmtilegt helgina 2.-3. október.
Ætlunin er að allir viðburðir þessa helgi verði auglýstir saman í
viðburðardagskrá tengdri helginni.
Hafa skal samband við Sigurð Val Ásbjarnarson, bæjarstjóra hið fyrsta. Allar ábendingar og hugmyndir í sambandi við vígsluna eru vel þegnar.




Athugasemdir