Vill reisa 14 hús á fótboltavelli
SÓTT hefur verið um leyfi til að byggja tólf hús á gamla fótboltavellinum í hjarta Siglufjarðarbæjar. Það er Stefán Einarsson frá Siglunesi og fyrirtæki hans, Reisum byggingafélag, sem standa að þessari umsókn.
Umsókn Stefáns hefur verið sett í deiliskipulagsferli, en hann vonast til að geta hafið jarðvinnu sem allra fyrst og helst að hægt verði að flytja inn í fyrstu húsin í haust.
Hugmyndin er að þarna verði sex íbúðir í parhúsum og átta íbúðir í raðhúsum, en bílskúrar skilja húsin að þannig að í raun er nánast um einbýli að ræða. Húsin eru svonefnd Kanadahús úr timbri, en auk teikninga eru það aðeins klæðning að utan, hurðar og gluggar, sem koma frá Kanada. Fyrirtækið hefur byggt 15 slík hús á Akureyri.
Stefán segist telja að markaður sé fyrir húsin og nú þegar hafi nokkrir líklegir kaupendur haft samband við hann. „Hér á Siglufirði er margt eldra fólk, sem situr uppi með stór og oft óhentug hús. Þessi hús gætu verið lausn fyrir þetta fólk því gamli malarvöllurinn er mjög miðsvæðis, með auðveldu aðgengi að allri þjónustu; sjúkrahús öðrum megin og verslanir og bankar hinum megin.
Ég hefði viljað byrja jarðvinnu og undirbúning í næsta mánuði. Deiliskipulagsferlið verður þó að hafa sinn gang, en vonandi getum við byrjað sem allra fyrst,“ segir Stefán.
Hugmyndin var að nota veturinn til að búa í haginn og vonast Stefán enn til að það gangi eftir. „Ég ætlaði að vera klár með átta íbúðir í haust,“ segir Stefán.
Góðærið kom ekkert sérstaklega til Siglufjarðar
Aðspurður um kreppuna segir Stefán að staðan sé allt öðru vísi á landsbyggðinni heldur en á suðvesturhorninu.
„Góðærið kom ekkert sérstaklega til Siglufjarðar og það má því segja að staðan sé svipuð hér og verið hefur síðustu 50 árin. Nú er hins vegar eitt og annað í gangi hér. Það gengur betur í rækjunni, göngin verða tekin í notkun seinna í ár og vonandi fylgja þeim jákvæðir straumar. Svo tekur framhaldsskóli til starfa í Ólafsfirði í haust, en eftir göngin tekur ekki nema um 15 mínútur að keyra á milli bæjarhlutanna Siglufjarðar og Ólafsfjarðar,“ segir Stefán Einarsson.
Þórir Kr. Þórðarson, bæjarstjóri í Fjallabyggð, segir að verkefnið sé í skoðun og fari í deiliskipulagsferli á næstunni.




Athugasemdir