Vinabæjarmót Norræna félagsins
Undirbúningur að vinabæjamótinu í sumar er í fullum gangi eins og margir bæjarbúar hafa orðið varir við. Það er að ótrúlega mörgu að hyggja og ekki ráð nema í tíma sé tekið þegar finna þarf gistingu handa fjölda manns og undirbúa dagskrá.
Gestirnir okkar koma á fimmtudeginum 24. júní og verður móttaka í bátahúsinu frá kl: 16:00 þann dag. Best að fara að rifja upp alla þjóðsöngvana!
Á föstudeginum mega bæjarbúar eiga von á að heyra hin ýmsu norðurlandamál hljóma þar sem gestum gefst kostur á að skoða sig um í bænum, heimsækja gallerí, söfn og búðir, fara í golf og í reiðtúra svo eitthvað sé nefnt. Síðan munu gestir og gestgjafar borða saman í íþróttahúsinu.
Á laugardeginum stendur til að aka um Fjallabyggð, heimsækja Ólafsfjörð og kynna þeim sumarveginn okkar yfir Lágheiði ásamt því að skoða Fljótin og líta inn á Bjarnagili í kaffi. Vonandi verður hægt að fá að fara gegnum göngin aðra leiðina en það veltur á ýmsu.
Á sunnudagsmorgninum verður norræn messa og svo fara gestir að tygja sig heim á leið. Við vonum að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir þessa daga því við viljum gjarnan hafa uppákomur hér og þar úti við sem flestir gætu notið og sýna umhverfið okkar í sinni fegurstu mynd.
Með von um gott og gleðilegt sumar, kveðja frá stjórn Norræna félagsins.




Athugasemdir