Vorfuglarnir koma
sksiglo.is | Almennt | 18.04.2009 | 17:47 | Síldarminjasafnið | Lestrar 200 | Athugasemdir ( )
Í vorblíðu síðustu daga hefur sést og heyrst til lóunnar, hrossagauksins, jaðrakanans, rauðhöfðaandar, skúfandar og urtandar. Áður voru komnir tjaldar, álftir, stelkar, hettumáfar og skógarþrestir. Margróma fuglasöngur fyllir loftið og mest áberandi í bænum eru þrestirnir sem hafa sungið upp á síðkastið eins og þeir ættu lífið að leysa og byrjaðir fyrir allar aldir hvern morgun.
Næstir í röðinni verða líklega duggönd, lóuþræll, sandlóa, spói, kjói, grátittlingur, maríuerla, steindepill og vanalega er síðastur óðinshaninn. Alltaf er það sama undrunarefnið hvernig þessir litlu fuglar rata í háloftunum yfir úthafið og hvernig þeir sýna átthögum sínum sama trygglyndið þrátt fyrir kaldranalegt viðmót á snjóþungum vorum.
Athugasemdir