Yfir 700 tonnum af rækju landað frá áramótum

Yfir 700 tonnum af rækju landað frá áramótum Yfir 700 tonnum af rækju hefur nú verið landað hjá rækjuverksmiðju Rammans á Siglfirði frá áramótum og hefur

Fréttir

Yfir 700 tonnum af rækju landað frá áramótum

Siglunes SI70
Siglunes SI70
Yfir 700 tonnum af rækju hefur nú verið landað hjá rækjuverksmiðju Rammans á Siglfirði frá áramótum og hefur vinnslan þar gengið vel. Siglunes, Sigurborg og Bylgjan hafa verið á rækjuveiðum fyrir verksmiðjuna að undanförnu og nú um helgina bætist Múlaberg í þeirra hóp, en skipið hefur verið á karfaveiðum frá Þorlákshöfn.

Humarvertíð er hafin og munu Jón á Hofi og Fróði veiða fyrir humarsvinnsluna í Þorlákshöfn. Síðustu mánuði hafa þeir aflað hráefnis sem unnið hefur verið þar ásamt karfanum úr Múlabergi.
 
Sigurbjörgin er á blönduðum veiðum á heimamiðum en Mánabergið er í slipp á Akureyri og stefnt er á að skipið fari á veiðar um 20. apríl. Sigurbjörgin landaði síðast á Ólafsfirði í byrjun apríl 175 tonnum af afurðum og aflaverðmæti var um 109 milljónir króna.


Athugasemdir

19.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst