Skíðasvæðið í dag
Það var mikið um að vera á Skíðasvæðinu í Skarðsdal í dag. Í rjómablíðu og góðu færi komu keppendur í Super Troll Ski Race Fjallaskíðamótinu í mark og að sjálfsögðu var hellingur af fólki sem var einfaldlega bara að njóta þess að skíða í skíðaparadísinni í Skarðsdalnum.
Nú þar sem ég er að passa fyrir hana Ólöfu mína á meðan hún slettir
almennilega úr klaufunum á blakmóti austur á fjörðum var ekkert annað að gera en skella
sér á skíði með stúlkurnar og taka nokkrar myndir í leiðinni sem eru hér fyrir neðan.
Eins og ég skrifaði hér aðeins ofar þá er hún Ólöf ekki hérna til að fara yfir stafsetninguna í textanum hjá mér
þannig að þið verðið bara að bíta í puttana á ykkur ef þið sjáið einhverja villu.
Athugasemdir